Skip to main content
Fréttir

Fundur í ungliðahópi

By 8. desember, 2003No Comments

Tilkynningar Næsti fundur í ungliðahópi Samtakanna ´78 verður sunnudaginn 14. desember klukkan 20:00 í félagsheimili Samtakanna, Laugavegi 3.

Ungliðahópurinn er ætlaður samkynhneigðum og tvíkynhneigðum ungmennum á aldrinum 14-19 ára. Tilgangur hans er að skapa og styrkja félagsleg tengsl milli þeirra. Margt spennandi verður á dagskrá í vetur. Við bjóðum meðal annars til okkar alls konar gestum úr þjóðfélaginu til að ræða spennandi málefni, við höldum videokvöld, höldum árshátíð og litlu jólin og margt fleira. Það er okkar sjálfra að móta dagskrána með stjórnendum hópsins, þeim Söru Dögg og Dofra Erni.

Til þess að fá fréttir af starfinu er tilvalið að skrifa hópnum og láta skrá sig á netfangalistann. Netfang hópsins er unglidar@samtokin78.is og það eru umsjónarmennirnir sem annast pósthólfið og svara bréfum. Ef þér finnst þægilegra að hitta þau Söru Dögg og Dofra Örn eða einhvern úr hópnum áður en þú kemur á vettvang þá geturðu sent tölvupóst á unglidar@samtokin78.is. eða hringt á skrifstofu Samtakanna ´78 alla virka daga frá 14-16.

Leave a Reply