Skip to main content
Fréttir

SUMARFERÐ KMK 4. – 6. JÚLÍ: HÍTARVATN 2008!

By 20. maí, 2008No Comments

KMK stendur fyrir fjölskylduvænni ferð á Hítarvatn frá föstudeginum 4. júlí til sunnudags 6. júlí. Verð á fjölskyldu er 500 kr. á nóttina, hvort sem gist er í skála eða í tjaldi. Hítarvatn er við veg númer 593, 46 km vestan Borgarness.

Boðið verður uppá ókeypis veiðikennslu fyrir þau sem vilja. Veiðileyfið í ánni er 2,500 kr. fyrir daginn.

Þetta er tilvalið tækifæri til að hitta skemmtilegar konur og fjölskyldur þeirra og eyða deginum saman. Hítarvatna skálinn verður opinn fyrir KMK á föstudagskvöldið og munu stelpurnar hafa allt húsnæðið. Á laugardaginn mun félagið deila leitarmannaskálanum með öðrum gestum skálans. Skráning á kmk@kmk.is. Nánari upplýsingar á www.kmk.is og www.myspace.com/konurmedkonum. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Hítarvatn á þessari vefslóð.

-Stjórn KMK

 

 

Leave a Reply