Skip to main content
Fréttir

VERNDARVÆTTIRNAR

By 13. júní, 2007No Comments

Verndarvættirnar eru nýstofnaður samstarfsvettvangur félaga í Amnesty International og Samtökunum ´78 um aðgerðir í málefnum er varða mannréttindi lesbía, homma, tvíkynhneigðra og transgender fólks. Víða um heim eiga þessir hópar verulega undir högg að sækja og sæta mismunun, kúgun og ofbeldi. Aðaláhersla hópsins verður því á aðgerðir í alþjóðlegu samhengi til þess að sporna við slíkum mannréttindabrotum og glæpum.

Verndarvættirnar eru nýstofnaður samstarfsvettvangur félaga í Amnesty International og Samtökunum ’78 um aðgerðir í málefnum er varða mannréttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks.

Þrátt fyrir að fólk sem tilheyri þessum hópum á Íslandi búi almennt við frekar góða stöðu í nútímanum þá eiga þessir hópar verulega undir högg að sækja í daglegu lífi víða um heim. Má þar nefna mismunun af ýmsu tagi, ofbeldi og jafnvel hatursmorð. Svo rammt kveður að misréttinu að í mörgum tilfellum eru það jafnvel stjórnvöld hinna ýmsu ríkja sem standa beint eða óbeint fyrir meiriháttar mannréttindabrotum, þar á meðal fangelsunum, ofbeldi, pyntingum og jafnvel aftökum.

Þess vegna er aðaláhersla Verndarvættanna á aðgerðir í alþjóðlegu samhengi til að sporna við þessum glæpum. Í því augnamiði mun hópurinn fylgjast með mannréttindabrotum og beita sér, bæði í eigin nafni sem og þeirra samtaka sem að baki standa, þegar við á. Einnig er meiningin að ná til íslenskra stjórnvalda og brýna þau og hvetja til aðgerða á alþjóðavettvangi.

Starfið er nýlega farið af stað og því enn í mótun, en þessa dagana fer mesta púðrið í undirbúning vegna þátttöku hópsins í Hinsegin dögum í sumar og aðgerða í Gleðigöngunni. Nú er því kjörið tækifæri fyrir alla sem vettlingi geta valdið að slást í hópinn, taka þátt í skemmtilegu starfi, hafa áhrif og leggja sitt lóð á vogarskálar bættra mannréttinda og betri heims.

Næsti fundur Verndarvættanna er kl.20.30, mánudagskvöldið 18.júní 2007, í húsakynnum Samtakanna ’78. Einnig er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá Hilmari Magnússyni meðstjórnanda/alþjóðafulltrúa í stjórn Samtakanna ’78 í netfanginu: hilmar.magnusson@hotmail.com.

 

-Verndarvættirnar

 

 

Leave a Reply