Skip to main content
Fréttir

HINSEGIN PARTY Á CAFÉ OLIVER

By 13. febrúar, 2008No Comments

Samtökin ´78 bjóða upp á hinsegin Samtakapartý á Café Oliver laugardagskvöldið 16. febrúar. Partýið byrjar kl. 23:30 – tvíeykið DJ Þórir og DJ Skjöldur halda uppi stuði fram á nótt! Fimmtíu félagar í Samtökunum ´78 og FSS fá einn frían drykk til kl. 01 og má nálgast frímiðana á opnu húsi í Samtökunum ´78 fimmtudagskvöldið 14. febrúar.

Samtökin ´78 bjóða upp á hinsegin Samtakapartý á Café Oliver laugardagskvöldið 16. febrúar. Partýið byrjar kl. 23:30 – tvíeykið DJ Þórir og DJ Skjöldur halda uppi stuði fram á nótt!

Drottningin og kóngurinn Georg og Halla himintungl taka á móti gestum og bjóða upp á óborganlegt konunglegt uppistand á miðnætti!

Fimmtíu félagar í Samtökunum ´78 og FSS fá einn frían drykk til kl. 01 og má nálgast frímiðana á opnu húsi í Samtökunum ´78 fimmtudagskvöldið 14. febrúar.

Kvöldið er í boði Gordon´s Space og Café Oliver, sem býður upp á sérstakan Valentínusarkvöldverð í tilefni kvöldsins – Aðgangur er ókeypis!

Mætum öll hýr á brá og styðjum þannig félagið!

 

 

Leave a Reply