Skip to main content
Fréttir

Nýársball á Kaffi Reykjavík

By 20. desember, 2005No Comments

Í ár efna Samtökin ’78 til áramótafagnaðar á Kaffi Reykjavík. Húsið opnað kl. 01:00 á nýársnótt og stendur gleðin fram á morgun.

Plötusnúðar: DJ Skjöldur og DJ Twiggy

Forsala aðgöngumiða hefst á Opnu húsi fimmtudaginn 22. desember.

Miðaverð í forsölu: 1200 kr. fyrir félagsmenn og 1500 kr. fyrir aðra.
Miðaverð á nýársnótt: 1500 kr. fyrir félagsmenn og 1800 kr. fyrir aðra.
ATH! Þeir sem greiða félagsgjald í Samtökin ’78 fyrir næsta ár fá ókeypis miða á ballið í kaupbæti!*

Í fyrra varð húsfyllir og frábær stemmning – nú endurtökum við leikinn á enn stærri stað!

Allir velkomnir!

* Tilboðið gildir fyrir alla þá sem greiða fullt félagsgjald í Samtökin ’78 fyrir mánaðarmót. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Greiða má á Opnu húsi á mánudögum og fimmtudögum.

Leave a Reply