Skip to main content
Fréttir

ÆFING HJÁ KMK

By 8. apríl, 2008No Comments

Blaklið KMk hefur starfað af krafti undanfarin 5 ár við góðan orðstýr. Þennan veturinn æfir liðið í Íþróttahúsi Selásskóla, Selásbraut, Árbæ og eru æfingar haldnar miðvikudögum frá kl. 18:50 – 19:40. Þjálfari liðsins er Marinov Todor en í blakliðinu eru lesbíur og vinkonur þeirra á öllum aldri.

Það er ekki skilyrði að kunna blak enda kemur kunnáttan fljótt. Nýjar konur eru alltaf velkomnar og vel tekið á móti þeim. Áhugasamar geta haft samband við Fríðu (866-8246) eða Kristínu (898-3060) til að fá nánari upplýsingar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á þær stöllur: fridaagnars@isl.is eða kristin@hexa.is

Góður andi er í blakliðinu og mikið félagslíf og er blakið því góð leið til að kynnast konum og eiga skemmtilegt og gefandi félagslíf – með og án bolta.

-Blaklið KMK

 

 

Leave a Reply