Skip to main content
Fréttir

FRÉTTATILKYNNING

By 22. janúar, 2007No Comments

Þann 15. febrúar næstkomandi klukkan 20 verður efnt til stofnfundar transgender baráttuhóps. Baráttumál hópsins eru meðal annars lagabætur og réttarbætur og að stuðla að auknum skilningi á málefnum transgender fólks, þeirra sem upplifa sig í röngu kynhlutverki og leita leiða til að leiðrétta kyn sitt. Allir eru velkomnir á stofnfundinn, bæði trönsur og áhugafólk um þetta málefni.

Þann 15. febrúar næstkomandi verður efnt til stofnfundar transgender
baráttuhóps um málefni transgender fólks á Íslandi. Baráttumál  hópsins er
lagabætur of réttarbætur og að stuðla að auknum skilningi á málefnum
transgender fólks, þeirra sem upplifa sig í röngu kynhlutverki og leita
leiða til að leiðrétta kyn sitt. Enn frekar er það verkefni hópsins og
baráttumál að auka fræðslu til fagfólks svo sem geðteyma og lækna og 
vera þeim innan handar í því að aðstoða fólk sem er í þessu ferli eða hafa 
lokið því. Um leið er hugmyndin að byggja upp skemmtilegan samstöðuhóp meðal
transgender einstaklinga, ættingja, vina og stuðningsmanna þeirra.
Hópurinn líkt og svo margir aðrir starfar undir regnhlíf Samtakanna ´78.

Allir eru velkomnir, bæði trönsur og áhugafólk um þetta málefni.
Fundurinn hefst kl. 20 fimmtudaginn 15. febrúar og verður í húsakynnum
Samtakanna ´78 að Laugavegi 3.

 

Leave a Reply