Skip to main content
Fréttir

FYRIRLESTUR UM GJÖRHYGLI HUGLEIÐSLU

By 27. febrúar, 2007No Comments

Þann 1. mars mun Margrét Arnljótsdóttir fræða gesti félagsmiðstöðvarinnr um gjörhygli hugleiðslu (mindfulness meditation), hvaða áhrif hugleiðsla hefur, andlega og líkamlega, notkun hennar í heilbrigðiskerfinu og hvernig eigi að hugleiða.

Þann 1. mars mun Margrét Arnljótsdóttir fræða gesti félagsmiðstöðvarinnr um gjörhygli hugleiðslu
(mindfulness meditation), hvaða áhrif hugleiðsla hefur, andlega og líkamlega, notkun hennar í heilbrigðiskerfinu og hvernig eigi að hugleiða.

Gjörhygli er þýðing á enska orðinu mindfulness. Gjörhygli er blátt áfram það að vita hvað er að gerast á meðan það er að gerast. Að hafa athyglina í núinu hvert andartak, án þess að taka afstöðu, heldur einfaldlega sjá það sem er. Gjörhygli má lýsa sem kjarnanum í því að vera.

Þessi athygliverði fyrirlestur verður haldinn í Regnbogasal Samtakanna ´78 hefst kl. 21.

-Samtökin ´78

Leave a Reply