Skip to main content
Fréttir

MEÐ HINSEGIN AUGUM: ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON FLYTUR FYRIRLESTUR Í HÁSKÓLA ÍSLANDS

By 17. janúar, 2008No Comments

Föstudaginn 29. febrúar heldur Árni Heimir Ingólfsson fyrirlestur í Háskóla Íslands á vegum fyrirlestraraðar Samtakanna ´78, Með hinsegin augum. Fyrirlesturinn nefnist Hin dulda merking tónanna: Um kynhneigð og sköpun hjá Tsjaíkovskíj, Ravel, Copland og Britten. Árni Heimir nam píanóleik við Oberlin Conservatory of Music og lauk þaðan BMus-prófi í píanóleik og tónlistarsögu. Hann lauk MA-prófi í tónvísindum við Harvard-háskóla 1999 og doktorsprófi við sama skóla vorið 2003. Árni Heimir hefur komið fram á fjölda tónleika í Evrópu og í Bandaríkjunum, sent frá sér fjölmargar fræðigreinar á sviði íslenskrar tónlistar og haldið fyrirlestra um íslenska tónlist víða um lönd. Hann er nú tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og dósent við Listaháskóla Íslands. Þar til á allra síðustu áratugum fóru samkynhneigð tónskáld oftast leynt með kynhneigð sína. Hér fjallar Árni Heimir um fjögur tónskáld og spyr þeirrar áleitnu spurningar hvort kynvitund þeirra endurspeglist að einhverju leyti í tónlistinni sjálfri. Þótt tónlist þeirra sé ólík, er hægt að finna ákveðna þræði sem tengja saman efnistök tónskáldanna, persónuleg viðhorf þeirra og viðtökur almennings.

Fyrirlesturinn er fluttur í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og hefst kl. 12:15 á hádegi. Að þeim loknum gefst áheyrendum kostur á að bera fram fyrirspurnir og taka þátt í stuttum umræðum.

————————————————————————–

NÆSTU FYRIRLESTRAR Í FYRIRLESTRARÖÐINNI MEÐ HINSEGIN AUGUM Á 30 ÁRA AFMÆLISÁRI SAMTAKANNA ´78:

Föstudagur 14. mars kl. 12:15
SIGRÚN SVEINBJÖRNSDÓTTIR
VEGANESTI Í HINSEGIN VEGFERÐ
Uppeldi og menntun til þátttöku og ábyrgðar

Föstudaginn 14. mars heldur Sigrún Sveinbjörnsdóttir fyrirlestur í Háskóla Íslands á vegum fyrirlestraraðar Samtakanna ´78, Með hinsegin augum. Sigrún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1966, embættisprófi í sálfræði frá Gautaborgarháskóla 1975 og doktorsprófi í sömu fræðum frá LaTrobe háskóla í Melbourne árið 2001. Hún er nú dósent við Háskólann á Akureyri. Auk kennslustarfa á ýmsum skólastigum hefur Sigrún stundað sálfræðistörf, einkum með starfsfólki skóla og foreldrum barna og unglinga. Um árabil hefur hún stundað samanburðarrannsóknir á unglingum með áherslu á áhættu- og verndarþætti og það hvernig ungt fólk spjarar sig í amstri dagsins. Í fyrirlestri sínum fjallar Sigrún m.a. um gagnkynhneigðarrembu og -viðmið (heterosexism og heteronormativity) í skólum eins og þær tilhneigingar birtast í námsefni og hvaða veganesti út í lífið það er hinsegin börnum og unglingum í skólum svo og ástvinum þeirra. Hugað verður að því hvaða aðferðir hafi verið reyndar sem helst duga til verndar hinsegin nemendum og ungum ástvinum hinsegin fólks í skólum.

Fyrirlesturinn er fluttur í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og hefst kl. 12:15 á hádegi. Að þeim loknum gefst áheyrendum kostur á að bera fram fyrirspurnir og taka þátt í stuttum umræðum.

Föstudagur 28. mars kl. 12:15
OLIVER PHILLIPS
SEXUAL RIGHTS – FROM MARGINAL TO MAINSTREAM AND TO WHAT END?
What can we learn from Zimbabwe and South Africa?

Föstudaginn 28. mars heldur Oliver Phillips fyrirlestur í Háskóla Íslands á vegum fyrirlestraraðar Samtakanna ´78, Með hinsegin augum. Hann nam lögfræði og stjórnmálafræði við Háskólann í Cape Town og lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Cambridge, Englandi. Rannsóknir hans beinast að löggjöf, mannréttindum og kynhneigð. Hann er stofnandi mannréttindasamtaka homma og lesbía í ættlandi sínu, Zimbabwe, og aðstoðar samkynhneigða landa sína sem leita hælis í Bretlandi. Hann kennir nú við lagadeild Westminster-háskóla í London. Í fyrirlestri sínum ræðir Oliver Phillips um þátt kynhneigðar í mótun þjóðernisvitundar í löndum sem lengi hafa lifað í skugga nýlendustefnu og líta gjarnan á umræðu um samkynhneigð sem enn einn ófögnuðinn að utan. Sem fræðimaður, hommi og baráttumaður spyr Oliver Phillips spurninga um kynhneigð og þjóðernisvitund, tengsl þessara þátta við mannréttindi, hvort almenn mannréttinda¬barátta vinni gegn hómófóbíu og mismunun og auðveldi fólki að njóta ásta hvað sem mismunandi menningu líður.

Fyrirlesturinn er fluttur í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og hefst kl. 12:15 á hádegi. Að þeim loknum gefst áheyrendum kostur á að bera fram fyrirspurnir og taka þátt í stuttum umræðum.

Föstudagur 11. apríl kl.12:15
ANNADÍS GRETA RÚDÓLFSDÓTTIR
SIGRAR ÁSTIN ALLT?
Um ráðgjafar- og sjálfshjálparbækur fyrir fjölskyldur samkynhneigðra

Föstudaginn 11. apríl heldur Annadís Greta Rúdólfsdóttir fyrirlestur í Háskóla Íslands á vegum fyrirlestraraðar Samtakanna ´78, Með hinsegin augum. Annadís lauk doktorsprófi í félagssálfræði frá London School of Economics and Political Science og er nú lektor í þeirri grein við University of the West of England í Bristol. Hún hefur m.a. rannsakað kynjaðar myndir sjálfsins í minningargreinum, kvenímyndir fegurðarsamkeppna svo og skilgreiningar á móðurhlutverkinu og áhrif þeirra á sjálfsmynd ungra kvenna. Í fyrirlestri sínum fjallar Annadís um rannsókn þeirra Victoriu Clarke á inntaki fjölmargra bóka sem hafa að geyma fróðleik og ráðleggingar til aðstandenda lesbía og homma. Þar er skoðað hvernig samkynhneigð er skýrð og skilgreind í þessum bókum og hvaða ráðleggingar aðstandendur fá um samskipti sín við samkynhneigða og oft fordómafullt samfélag. Hvaða hugmyndafræði liggur hér að baki og hvernig sjá sjálfshjálparbækurnar hið pólitíska og samfélagslega samhengi? Hversu róttæk og frelsandi eru sóknarfærin sem slíkar bækur benda á?

Fyrirlesturinn er fluttur í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og hefst kl. 12:15 á hádegi. Að þeim loknum gefst áheyrendum kostur á að bera fram fyrirspurnir og taka þátt í stuttum umræðum.

Leave a Reply