Skip to main content
Fréttir

SAMKEPPNI UM LÓGÓ OG GRAFÍSKT ÚTLIT FYRIR SAMTÖKIN ´78

By 1. nóvember, 2006No Comments

Samtökin ´78 efna nú til samkeppni um lógó og grafískt útlit fyrir félagið. Óskað er eftir að hönnuðir og aðrir þeir sem treysta sér til geri drög að lógói og nýju útliti fyrir félagið. Um er ræða lógó og letur sem myndi nýtast fyrir bréfahaus, nafnspjöld og haus á vefsíðu.

Samtökin ´78 efna til samkeppni um lógó og grafískt útlit fyrir félagið. Óskað er eftir að hönnuðir og aðrir þeir sem treysta sér til geri drög að lógói og nýju útliti fyrir félagið. Um er ræða lógó og letur sem myndi nýtast fyrir bréfahaus, nafnspjöld og haus á vefsíðu. Senda skal tillögurnar á blöðum af stærðinni A4 til Samtakanna 78, Laugarvegi 3, 101 Reykjavík fyrir lok dags 4. desember næstkomandi undir dulnefni en rétt nafn fylgi með í lokuðu umslagi.

Tillögurnar verða til sýnis í sal félagsins frá 5. til 15. desember og hinn almenni félagsmaður getur skoðað tillögurnar og gefið sitt álit. Þriggja manna dómnefnd mun mæla með 3 tillögum við stjórn félagsins og hún ákveður hvaða hugmynd skal vinna áfram með í samráði við hönnuð hugmyndarinnar. Formaður dómnefndar er Guðmundur Oddur Magnússon prófessor við Listaháskóla Íslands.

Stjórn félagsins áskilur sér þann rétt að hafna öllum tillögum sem henni berast og/eða að þróa áfram þá hugmynd sem henni líst best á í samvinnu við hönnuðinn. Verðlaun fyrir þann sem vinnur hugmyndasamkeppnina er ferð fyrir 2 til borgar í Evrópu (á áfangastöðum Iceland Express eða Flugleiða) að eigin vali og 150. þúsund krónur í peningum.

-stjórn Samtakanna ’78

 

Leave a Reply