Skip to main content
Fréttir

BLAKÆFING HJÁ KMK

By 12. september, 2007No Comments

Blakæfingar KMK verða í vetur á mánudögum kl. 19 – 21 og á fimmtudögum kl. 19 – 20 í Korpuskóla í Grafarvogi

Nýjar konur eru sérstaklega hvattar til að mæta! Blakkunnátta er ekki skilyrði enda kemur kunnáttan fljótt. Verið því velkomnar! Einnig má hafa samband við okkur ef þið eruð eitthvað smeikar í fyrstu, ýmist á neðangreind netföng eða í síma.

Við erum í leit að þjálfara til að vera með okkur á lengri æfingunum svo ef þið eruð blakþjálfarar eða vitið um einhvern sem væri tilbúinn til að þjálfa okkur þá endilega látið okkur vita með tölvubréfi á netfangið fridaagnars@isl.is eða kristin@hexa.is eða í síma 866-8246 (Fríða) og 898-3060 (Stína).

-KMK – Konur með knött

 

Leave a Reply