Skip to main content
Fréttir

GLEÐIGANGA GAY PRIDE – HINSEGIN HÁTÍÐ Í LÆKJARGÖTU!

By 12. júlí, 2006No Comments

 

Áttunda árið í röð halda samkynhneigðir Hinsegin daga hátíðlega í Reykjavík. Eftir mikinn og vandaðan undirbúning allt frá síðustu hátíð, fjölmenna allir sem vilja sýna samstöðu með málstað hinsegin fólks í fjörmikla og skrautlega gleðigöngu niður Laugaveg og á glæsilega útitónleika í Lækjargötu laugardaginn 12. ágúst.

 

 

Klukkan 14:00
GLEÐIGANGA GAY PRIDE PARADE
Allir safnast saman á Rauðarárstíg, rétt hjá Hlemmi, í síðasta lagi klukkan 12:30. Lagt af stað stundvíslega klukkan tvö í voldugri gleðigöngu eftir Laugavegi og niður í Lækjargötu. 

Klukkan 15:15
HINSEGIN HÁTÍÐ Í LÆKJARGÖTU OUTDOOR CONCERT IN LÆKJARGATA
Guðrún Ögmundsdóttir, alþingismaður, ávarpar samkomuna og skemmtikraftar stíga á svið: Regína Ósk, Friðrik Ómar, Bjartmar, Gabriel, The Nanas og Ruth & Vigdis & Queentastic.

 

 

-Hinsegin dagar í Reykjavík

Leave a Reply