Skip to main content
Fréttir

Foreldrar og aðrir aðstandendur homma og lesbía – Vetrarstarfið er hafið

By 24. október, 2001No Comments

Tilkynningar Hópur foreldra og annarra aðstandenda samkynhneigðra hefur hafið vetrarstarfið og eru fundir haldnir 2. og 4. hvern miðvikudag haustið 2001.

Næsti fundur verður haldinn 14. nóvember í félags- og menningarmiðstöð Samtakanna ´78 á Laugaveg 3, 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20:30. Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn er alltaf einhver til staðar frá kl 20:00. þar næsti fundur verður síðan á sama stað og tíma 28. nóvember.

Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því séum við betur aflögufær til að vera bakhjarlar við ástvini okkar. Við vinnum að fræðslu bæði opnum fundum og einnig innan okkar hóps. Markmið okkar er að efla umræðu í okkar nánasta umhverfi og út í samfélagið, til að auka skilning og þekkingu á samkynhneigð sem er fjölskyldumál. Við viljum undirstrika að samkynhneigð er einn þáttur í litrófi lífsins og snúum því bökum saman því fjölbreytileikinn auðgar líf okkar allra.

Foreldrahópurinn mun síðan standa fyrir opnum fræðslu- og kynningarfundi um miðjan nóvember ? sem verður nánar auglýstur síðar.

Leave a Reply