Skip to main content
Fréttir

FAS: – Samverustund á aðventu

By 24. október, 2005No Comments

Tilkynningar Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS, bjóða til samverustundar á aðventu laugardaginn 10. desember kl. 16:00-18:00, í Regnbogasal Samtakanna ´78, Laugavegi 3, 4. hæð.

Hópar sem vinna að málefnum samkynhneigðra segja frá starfi sínu.

Þetta er sjötta árið í röð sem foreldrar og aðstandendur standa fyrir slíkri samverustund. Markmiðið er að eiga notalega stund saman, efla samhug og styrkja tengslin.

Foreldrar og aðstandendur, lesbíur og hommar eru hvattir til að mæta og bjóða með sér ættingjum og vinum. Fundurinn er öllum opinn sem hafa áhuga á að kynna sér starfið.

-FAS

Leave a Reply