Skip to main content
Fréttir

Fundur í ungliðahópi Samtakanna 78

By 12. janúar, 2004No Comments

Tilkynningar Næsti fundur í ungliðahópi Samtakanna ´78 verður sunnudaginn 16. janúar klukkan 20:00 í félagsheimili Samtakanna´78, Laugavegi 3. Ungliðahópurinn er ætlaður samkynhneigðum og tvíkynhneigðum ungmennum á aldrinum 14-19 ára. Tilgangur hans er að skapa og styrkja félagsleg tengsl milli þeirra.

Margt spennandi verður á dagskrá í vetur. Við bjóðum meðal annars til okkar alls konar gestum úr þjóðfélaginu til að ræða spennandi málefni, við höldum videokvöld, höldum árshátíð og margt fleira. Það er okkar sjálfra að móta dagskrána með stjórnendum hópsins, þeim Söru Dögg og Dofra Erni.

Til þess að fá fréttir af starfinu er tilvalið að skrifa hópnum og láta skrá sig á netfangalistann. Netfang hópsins er unglidar@samtokin78.is og það eru umsjónarmennirnir sem annast pósthólfið og svara bréfum. Ef þér finnst þægilegra að hitta þau Söru Dögg og Dofra Örn eða einhvern úr hópnum áður en þú kemur á vettvang þá geturðu sent tölvupóst á unglidar@samtokin78.is. eða hringt á skrifstofu Samtakanna ´78 alla virka daga frá 14-16.

Leave a Reply