Skip to main content
Fréttir

Gleiðileg bókajól – Bókmenntakvöld í Regnbogasal

By 3. nóvember, 2004No Comments

Tilkynningar Hið árlega jólabókakvöld Samtakanna ´78 verður í Regnbogasal félagsins á Laugavegi 3. fimmtudagskvöldið 2. desember og hefst kl. 21. Þar munu fjórir rithöfundar koma fram og lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum:

Gerður Kristný les úr verðlaunaskáldsögu sinni Bátur með segl og allt.
Guðbergur Bergsson les úr skáldsögu sinni Lömuðu kennslukonurnar.
Kristín Ómarsdóttir les úr skáldsögu sinni Hér.
Halldór Guðmundsson les valda kafla úr Halldór Laxness – Ævisaga, meðal annars það sem segir frá hommum í hópi samtíðarmanna hins unga Kiljans í Taormína á Sikiley fyrir áttatíu árum, á meðan skáldið dvaldi þar við ritun Vefarans mikla frá Kasmír.

Leave a Reply