Skip to main content
Fréttir

RÁÐSTEFNA UM ÍSLENSKA ÞJÓÐFÉLAGSFRÆÐI: HVAÐ MÓTAR VIÐHORF SAMFÉLAGSINS TIL SAMKYNHNEIGÐAR OG SAMKYNHNEIGÐRA? SKÓLINN – MIKILVÆGUR AÐILI Í UMRÆÐU OG FRÆÐSLU

By 26. apríl, 2007No Comments

 

Ráðstefna um íslensk þjóðfélagsfræði
Háskólanum á Akureyri, 27. – 28. apríl 2007.

Höfundur: Harpa Njáls, félagsfræðingur M.A.
Doktorsnemi við félagsvísindadeild Háskóla Íslands.

Hvað mótar viðhorf samfélags til samkynhneigðar og samkynhneigðra?
Skólinn – mikilvægur aðili í umræðu og fræðslu.

Útdráttur:
Í þessu erindi verður fjallað um viðhorf samfélags til samkynhneigðra. Byggt er á umfjöllun Parson (1951) um félagskerfi samfélags (social systems) virkni þess og hlutverk. Einnig er sjónum beint að mikilvægi félagstengsla fyrir einstaklinga innan fjölskyldu, vinahóps og skóla (Durkheim, 1951). Í byrjun verða viðhof til samkynhneigðar könnuð í sögulegu ljósi – síðan breytta tíma og ávinninga. Viðhof og gildi eiga rætur í menningu samfélaga, þau eru innrætt og viðhaldið með félagsmótun og taumhaldi. Niðurstöður sýna að stofnanir samfélagsins Kirkjan, Alþingi og skólinn gegna lykilhlutverkum. Alþingi Íslendinga hefur skilað réttindabaráttu samkynhneigðra miklum áföngum með lagasetningu sem tvímælalaust hefur haft áhrif á viðhorf og gildismat samfélagsins gagnvart samkynhneigðum, meðan þjóðkirkjan er hvorki samstiga þjóðinni né Alþingi. Fræðslu er þörf í skólum landsins, bæði fyrir börn og unglinga og ekki síður kennara og starfsmenn skóla, sem þurfa að mæta ólíkum viðhorfum og aðstæðum, styðja við fjölbreytileika mannlífsins og draga úr fordómum.

Sjá nánar hér og hér.

Leave a Reply