Skip to main content
Fréttir

MINNINGARGUÐSÞJÓNUSTA Í FRÍKIRKJUNNI

By 19. maí, 2008No Comments

Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin sunnudaginn 25. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.

Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00.

Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day.

Séra Hjörtur Magni Jóhannesson leiðir guðsþjónustuna.

Formaður HIV-Ísland, Gunnlaugur I. Grétarsson, flytur ávarp.

Tónlist: Söngdívan Margrét Pálmadóttir mætir með söngfugla sína, þau munu gleðja gesti og leiða söng.

Boðið verður upp á veitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu.

Mætum vel og stundvíslega!

HIV–Ísland
alnæmissamtökin á Íslandi

Leave a Reply