Skip to main content
Fréttir

Foreldrar og aðstandendur lesbía og homma – Styðjum, fræðum og styrkjum okkur sjálf

By 11. febrúar, 2003No Comments

Tilkynningar Foreldrar og aðrir aðstandendur lesbía og homma hittast á fundum annan og fjórða miðvikudag í mánuði yfir veturinn.

Næsti fundur verður miðvikudaginn 9. apríl í menningar- og félagsmiðstöð Samtakanna ´78, Laugarveg 3, 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20:30. Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn er alltaf einhver til staðar frá kl 20.

Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því séum við betur aflögufær til að vera bakhjarlar við ástvini okkar.

Við vinnum að fræðslu, bæði opnum fundum og einnig innan okkar hóps. Markmið okkar er að efla umræðu í okkar nánasta umhverfi og úti í samfélaginu og auka með því skilning og þekkingu á samkynhneigð sem er fjölskyldumál.

Velferð samkynhneigðra varðar okkur öll.

Veturinn 2003 verða fundir hjá foreldrum og aðstandendum samkynhneigðar sem hér segir:

Febrúar:
Miðvikudagur 12. febrúar
Miðvikudagur 26. febrúar

Mars:
Miðvikudagur 12. mars
Miðvikudagur 26. mars

Apríl:
Miðvikudagur 9. apríl
Miðvikudagur 23. apríl

Maí:
Miðvikudagur 14. maí
Miðvikudagur 28. maí

Leave a Reply