Skip to main content
Fréttir

ÁRAMÓTABALL Á KAFFI REYKJAVÍK

By 26. desember, 2005No Comments

Í ár efna Samtökin ’78 til glæsilegs áramótafagnaðar á Kaffi Reykjavík. Húsið er opnað kl. 01:00 á nýársnótt og stendur gleðin fram undir morgun á nýársdag. Þeir sem endurnýja félagsgjald sitt fyrir áramót fá í kaupbæti ókeypis miða á ballið. Endurnýjun félagsgjalda stendur yfir á bókasafni Samtakanna ´78 föstudag og á gamlársdag frá klukkan 13 til 17. Einnig býðst verulegur afsláttur á miðum á dansleikinn ef miðar eru keyptir í forsölu á bókasafninu.

 

Í ár efna Samtökin ’78 til glæsilegs áramótafagnaðar á Kaffi Reykjavík. Húsið er opnað kl. 01:00 á nýársnótt og stendur gleðin fram undir morgun á nýársdag.

Plötusnúðar: DJ Skjöldur og DJ Twiggy!

Forsala aðgöngumiða stendur yfir á bókasafni félagsins á mánudags- og fimmtudagskvöldum frá kl. 20-23:30. Á föstudag, 30. desember, og á laugardag, 31. desember (gamlársdag) er opið á bókasafninu fyrir forsölu miða og endurnýjun félagsgjalda.

Miðaverð í forsölu: 1200 kr. fyrir félagsmenn og 1500 kr. fyrir aðra.

Miðaverð við innganginn á nýársnótt: 1500 kr. fyrir félagsmenn og 1800 kr. fyrir aðra.
ATH! Þau sem greiða félagsgjald í Samtökin ’78 árið 2006 fyrir áramót, fá ókeypis miða á ballið í kaupbæti!*

Í fyrra varð húsfyllir og frábær stemmning – nú endurtökum við leikinn á enn stærri stað!

Allir velkomnir!

*Tilboðið gildir aðeins fyrir þau sem greiða fullt félagsgjald í Samtökin ’78 fyrir áramót. Félagsgjaldið er 3500 kr. Greiðslukortaþjónusta. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Greiða má á bókasafni félagsins föstudag og laugardag (gamlársdag) milli kl. 13–17. 

Leave a Reply