Skip to main content
Fréttir

SÆNSKA KIRKJAN VEITIR SAMKYNHNEIGÐUM HJÓNUM SÉRSTAKA BLESSUN

By 27. október, 2005No Comments

Frettir

Sænska kirkjan gaf í dag samþykki fyrir því að veita samkynhneigðu hjónum sérstaka blessun. Kirkjan samþykkti þó ekki að gefa leyfi fyrir hefðbundinni hjónavígslu samkynhneigðra.

160 kirkjunnar menn í Svíþjóð voru fylgjandi því að veita samkynhneigðum hjónum sérstaka blessun en 81 var á móti. Samkynhneigðir mega ganga í hjónaband með borgaralegum hætti í Svíþjóð. Síðar á þessu ári mun sérstök nefnd á vegum ríkisstjórnar landsins senda frá sér skýrslu þar sem því verður velt upp hvort samkynhneigðir geti gengið í hjónaband í kirkju.

–mbl.is

Leave a Reply