Skip to main content
Fréttir

HINSEGIN TANGÓ Á Q-BAR

By 26. júlí, 2007No Comments

Fimmtudaginn 26. júlí kl. 20 – 22 verður á Q-bar í Ingólfsstræti 3 kynning og kennsla fyrir byrjendur og lengra komna í hinsegin tangó.

 

Lærið um argentískan tangó frá hinsegin sjónarhorni –  allir munu læra að fylgja og leiða danssporin.

 

Per Berséus, sem kennir hinsegin tagó í Svíþjóð, og María Shanko, tangódansari og kennari munu leiða okkur í gegnum fyrstu skrefin og útskýra hugmyndafræðina á bakvið hinsegin tangó.

 

Pör sem og einstaklingar eru velkomin á lærdómsríkt og öðruvísi námskeið. Verð aðeins 500 kr.

 

Upplýsingar á heimasíðunni tangoadventure.com eða í síma 847 3566.

– Q bar

 

 

Leave a Reply