Hið árlega Jólabingó Samtakanna ´78 verður að þessu sinni haldið á hinum góðkunna skemmtistað Q-bar, Ingólfsstræti 3. Vinningarnir er glæsilegir sem aldrei fyrr og því vissara að mæta tímanlega og trygga sér bingó spjöld. Kvöldið hefst kl. 20:00 fimmtudaginn 6. desember og eru allir hjartanlega velkomnir.
Hið árlega Jólabingó Samtakanna ´78 verður að þessu sinni haldið á skemmtistaðnum Q-bar, Ingólfsstræti 3. Vinningarnir er glæsilegir sem aldrei fyrr; ferðavinningar, hótelgistingar, gjafabréf, líkamsræktarkort, bækur, geisladiskar og margt, MARGT fleira!
Tveir stórglæsilegir vinningar skipta með sér titlinum „Fyrsti vinningur“ í ár, en þeir eru ferð fyrir tvo til Barcelona frá Heimsferðum og flugmiði fyrir einn með Iceland Express til einhvers af áfangastöðum félagsins!
STAÐUR: Q-bar, Ingólfsstræti 3
DAGUR: 6. desember
TÍMI: 20:00, stundvíslega
STJÓRNENDUR: Hanna María Karlsdóttir og Viðar Eggertsson
Jólabingóið er einn vinsælasti viðburðurinn á vettvangi Samtakanna ´78 ár hvert og hefur fyrir löngu sprengt utan af sér aðstöðuna í félagsheimilinu. Því færum við okkur um set og spilum á hinum straigth friendly Q bar að þessu sinni!
-Samtökin ´78