Skip to main content
Fréttir

KROSSGÁTUKVÖLD KMK

By 20. nóvember, 2006No Comments

KMK stendur fyrir krossgátukvöldi föstudagskvöldið 1. desember næstkomandi kl. 21 í Regnbogasal Samtakanna ’78, Laugavegi 3.

Byggt er á sunnudagskrossgátu Tímarits Morgunblaðsins enda er hér um sama höfund að ræða eða Ásdísi Bergþórsdóttur. Alls verða þrjár krossgátur bornar á borð og verða þær léttari en Morgunblaðsgáturnar og því ættu allar konur að geta tekið þátt. Keppt verður í hópum en stærð hvers hóps fer eftir mætingu.

Leikarnir taka um klukkustund og í framhaldinu verður barinn opinn áfram fyrir kvennakvöld.

Mætum galvaskar og brjótum heilann saman!

-KMK


 

Leave a Reply