Skip to main content
Fréttir

JÓLABÓKAKVÖLD SAMTAKANNA ´78

By 11. desember, 2007No Comments

Hið árlega jólabókakvöld Samtakanna ´78 verður haldið fimmtudaginn 13. desember í Regnbogasalnum á Laugavegi 3. Fjöldi góðra gesta leggur kvöldinu lið og lesa upp úr áhugaverðum nýútkomnum bókum sínum. Kvöldið hefst kl. 21 og kynnir er Árni Pétur Guðjónsson leikari.

 

Hið árlega jólabókakvöld verður haldið:

Fimmtudaginn 13. desember kl. 21 í Regnbogasalnum á Laugavegi 3

Fjöldi góðra gesta leggur kvöldinu lið:
Lesið verður upp úr nýútkominni bók Hjálmars Sveinssonar um skáldið Elías Mar , Sigfinnur Þorleifsson les upp úr bók sinni Samtal við samtíman, Árni Pétur Guðjónsson les þýðingar á ljóðum Lorca úr bókinni Gustur úr djúpi nætur, Jónína Leósdóttir les úr bókinni Kossar og Olívur og Ingibjörg Reynisdóttir úr bókinni Strákarnir með strípurnar en heyrst hefur að samkynhneigð sé eitt af þeim þemum sem tekið er fyrir í þessum nýútkomnu unglingabókum. Þá les Pétur Blöndal upp úr samtalsbók sinni Sköpunarsögur en í henni er eitt af síðustu viðtölunum sem Elías Mar veitti.

Fjölmennið á þennan árlega og vinsæla viðburð í Regnbogasalnum meðan við bíðum eftir jóla- og áramótaböllunum!

-Samtökin ´78

 

 

 

Leave a Reply