Skip to main content
Fréttir

ST STYRMIR: SUNDÆFINGAR

By 2. febrúar, 2009No Comments

Sundhópur St. Styrmis hittist nú öll mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 18 í Laugardalslaug. Mæting er í steinapottinum rétt fyrir kl 18:00.Markmið hópsins er að koma sér í gott sundform, jafnt til skemmtunar eða sem undirbúning fyrir sundkeppni OutGames í Kaupmannahöfn næsta sumar. Æfingarnar eru skipulagðar eftir getu og vilja þeirra sem mæta. Það kostar ekkert að taka þátt annað en að borga sig inn í sundlaugina.

Nýliðar eru beðnir um að hafa samband við Jón Þór (s.8961988) eða Jón Örvar (s.693 6321) umsjónarmenn hópsins áður en þeir mæta í fyrsta skipti. Einnig er hægt að ná sambandi við þá í gegnum netfangið

 sunddeild.styrmir@gmail.com

Leave a Reply