Skip to main content
Fréttir

STJÓRNMÁLAFUNDUR Í FÉLAGSHEIMILI SAMTAKANNA '78

By 26. apríl, 2006No Comments

Samtökin ’78 halda kosningafund vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Fundurinn fer fram laugardaginn 13. maí kl. 16-18 í húsnæði félagsins að Laugavegi 3, fjórðu hæð. Við bjóðum tveimur fulltrúum hvers flokks að taka þátt í umræðum, en fulltrúum flokkanna er boðið að halda eina 5 – 10 mínútna framsögu um stefnu síns flokks.

Dagskrá:

1) Þóra Björk Smith kynnir starfsemi Samtakanna ’78 og þau málefni sem félagið vinnur að.
2) Fulltrúar þeirra flokka sem bjóða fram kynna stefnu síns flokks.
3) Umræður og fyrirspurnir.

Fundarstjóri er Frosti Jónsson

Fjölmennum!

Leave a Reply