Skip to main content
Fréttir

STOFNFUNDUR TRANSGENDER BARÁTTUHÓPS

By 22. janúar, 2007No Comments

Þann 15. febrúar næstkomandi verður efnt til stofnfundar transgender
baráttuhóps um málefni transgender fólks á Íslandi. Baráttumál  hópsins er
lagabætur of réttarbætur og að stuðla að auknum skilningi á málefnum
transgender fólks, þeirra sem upplifa sig í röngu kynhlutverki og leita
leiða til að leiðrétta kyn sitt. Enn frekar er það verkefni hópsins og
baráttumál að auka fræðslu til fagfólks svo sem geðteyma og lækna og 
vera þeim innan handar í því að aðstoða fólk sem er í þessu ferli eða hafa 
lokið því. Um leið er hugmyndin að byggja upp skemmtilegan samstöðuhóp meðal
transgender einstaklinga, ættingja, vina og stuðningsmanna þeirra.
Hópurinn líkt og svo margir aðrir starfar undir regnhlíf Samtakanna ´78.

Allir eru velkomnir, bæði trönsur og áhugafólk um þetta málefni.
Fundurinn hefst kl. 20 fimmtudaginn 15. febrúar og verður í húsakynnum
Samtakanna ´78 að Laugavegi 3.

Leave a Reply