Skip to main content
Fréttir

Tilboð á listviðburði

By 4. nóvember, 2011No Comments

Glæsileg menningartilboð standa meðlimum Samtakanna ´78 til boða:

 

Tveir fyrir einn tilboð

Íslenski dansflokkurinn vill bjóða félagsmönnum í Samtökunum 78 tvo miða á verði eins á sýninguna Fullkominn dagur til drauma.

Tilboðið gildir á sýninguna sunnudaginn 6. nóvember kl 20.00. Sýningin er á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Verð fyrir tvo miða er aðeins 3.800 krónur. Vinsamlegast sendið póst á gunnar@id.is með nafni og kennitölu fyrir kl. 16.00 á föstudag til að þiggja boðið. Miðarnir verða á því nafni við innganginn.

Kyningarmyndband má nálgast hér:

http://www.youtube.com/watch?v=kEZ8DLpul2E

 

 

Verið hjartanlega velkomin á:

Judy Garland kabarett



Lára Sveinsdóttir leik- og söngkona mun ásamt Djasshljómsveit Úlfs Eldjárns flytja ýmis vinsæl lög Judy Garland og leiða áhorfendur inn í stormasamt líf hennar.
Sýnt í Þjóðleikhúskjallaranum

laugardaginn 05. nóv. kl. 22:00
sunnudaginn 06. nóv. kl. 22:00
laugardaginn 12. nóv. kl. 22:00
sunnudaginn 20. nóv. kl. 22:00

Félagar í Samtökunum 78 fá miðann á aðeins kr. 2.500,-
Með framvísun leikhúsmiðans býður veitingahúsið Pisa upp á 20% afslátt.

Húsið opnar kl.21:00 og því tilvalið að mæta snemma, ná sér í góð sæti og fá sér gott að drekka!

Hlökkum til að sjá ykkur!

Tindilfætt

Leave a Reply