Skip to main content
ÁlyktunAlþjóðamál

Tökum á móti hinsegin Afgönum

By 17. ágúst, 2021október 5th, 2021No Comments

Talibanar hafa á síðustu dögum rænt völdum í Afganistan. Þetta þýðir að auk kvenna, sem hafa í einu vetfangi misst öll réttindi sín, er hinsegin fólk í Afganistan nú í enn meiri hættu en áður. Í ljósi þeirra hörmulegu atburða sem átt hafa sér stað undanfarna daga skorar stjórn Samtakanna ‘78 á íslensk stjórnvöld að skuldbinda sig án tafar til þess að taka á móti flóttafólki frá Afganistan og þá sérstaklega hinsegin flóttafólki.

Samtökin ‘78 hafa í tvígang komið að móttöku hinsegin flóttafólks í samvinnu við stjórnvöld og Rauða krossinn. Við erum tilbúin. En þið?