Nú styttist í þjóðfund hinsegin fólks þar sem fólki gefst færi á að móta stefnu Samtakanna ’78 til framtíðar! Öll áhugasöm eru hvött til að mæta í Ráðhúsið laugardaginn 11. febrúar milli 13 og 17 og koma hugmyndum sínum á framfæri. Hægt er að setjast á 10 mismunandi borð eftir málaflokkum. Þrátt fyrir það byrjar fundurinn á því að allir þátttakendur byrja á að skrifa niður hugmyndir fyrir alla málaflokkana og þær tillögur eru svo sendar á viðeigandi borð til úrvinnslu. Undir hverjum málaflokki eru dæmi um umræðuefni en ekki tæmandi listi.
1. Samtökin 78 og hinsegin félagsstarf
-Hagsmunafélögin
-Stefna og hugmyndafræði
-Ímynd og kynning
2. Að eldast hinsegin
-Heilbrigðisþjónusta
-Félagslíf
-Hinseginvæn dvalar- og elliheimili
3. Hinsegin hælisleitendur
-Hvernig styðjum við hinsegin hælisleitendur?
-Hvernig þrýstum við á breytingar í málefnum hinsegin hælisleitenda?
4. Lýðheilsa, kynlíf og kynheilbrigði
-Andleg líðan hinsegin fólks
-Kynheilbrigði og hinseginvæn kynfræðsla
-Kynsjúkdómar og útbreiðsla
5. Réttindabarátta
-Hvað hefur áunnist, hvað er eftir og hvernig náum við árangri?
-Forgangsröðun og mótun markmiða
6. Erlent og innlent samstarf
-Hvernig styðjum við réttindabaráttu hinsegin fólks erlendis, hvað getum við lært af öðrum þjóðum?
-Hvað á hinsegin fólk sameiginlegt með öðrum hópum og hvernig náum við samstarfi við þá hópa?
-Hvernig styðjum við hinsegin félög úti á landi?
7. Félagslíf og menning
-Hvernig eflum við félagslíf og menningu hinsegin fólks?
-Hvernig varðveitum við sögu hinsegin fólks?
-Íþróttir og hinseginvæn íþróttamenning
8. Hinsegin samfélagið
-Hvernig stuðlum við að gagnkvæmum skilningi og virðingu innan hinsegin samfélagsins?
-Sýnileiki hinseginleikans í samfélaginu?
9. Fræðsla
-Hverja þarf að fræða, hvernig og um hvað?
-Fjölmiðlar og staðalmyndir
10. Fjölskyldur, fjölskyldutengsl og sambönd
-Hinsegin fjölskyldur
-Ættleiðingar og barneignir hinsegin fólks, réttindi og tækifæri?
-Stefnumótamenning