Skip to main content
AuglýsingFélagsstarfFréttirTilkynningViðburður

Um hvað vilt þú ræða á Samtakamættinum?

By 8. febrúar, 2017nóvember 16th, 2021No Comments

Nú styttist í þjóðfund hinsegin fólks þar sem fólki gefst færi á að móta stefnu Samtakanna ’78 til framtíðar! Öll áhugasöm eru hvött til að mæta í Ráðhúsið laugardaginn 11. febrúar milli 13 og 17 og koma hugmyndum sínum á framfæri. Hægt er að setjast á 10 mismunandi borð eftir málaflokkum. Þrátt fyrir það byrjar fundurinn á því að allir þátttakendur byrja á að skrifa niður hugmyndir fyrir alla málaflokkana og þær tillögur eru svo sendar á  viðeigandi borð til úrvinnslu. Undir hverjum málaflokki eru dæmi um umræðuefni en ekki tæmandi listi.

1. Samtökin 78 og hinsegin félagsstarf

-Hagsmunafélögin
-Stefna og hugmyndafræði
-Ímynd og kynning

2. Að eldast hinsegin

-Heilbrigðisþjónusta
-Félagslíf
-Hinseginvæn dvalar- og elliheimili

3. Hinsegin hælisleitendur

-Hvernig styðjum við hinsegin hælisleitendur?
-Hvernig þrýstum við á breytingar í málefnum hinsegin hælisleitenda?

4. Lýðheilsa, kynlíf og kynheilbrigði

-Andleg líðan hinsegin fólks
-Kynheilbrigði og hinseginvæn kynfræðsla
-Kynsjúkdómar og útbreiðsla

5. Réttindabarátta

-Hvað hefur áunnist, hvað er eftir og hvernig náum við árangri?
-Forgangsröðun og mótun markmiða

6. Erlent og innlent samstarf

-Hvernig styðjum við réttindabaráttu hinsegin fólks erlendis, hvað getum við lært af öðrum þjóðum?
-Hvað á hinsegin fólk sameiginlegt með öðrum hópum og hvernig náum við samstarfi við þá hópa?
-Hvernig styðjum við hinsegin félög úti á landi?

7. Félagslíf og menning

-Hvernig eflum við félagslíf og menningu hinsegin fólks?
-Hvernig varðveitum við sögu hinsegin fólks?
-Íþróttir og hinseginvæn íþróttamenning

8. Hinsegin samfélagið

-Hvernig stuðlum við að gagnkvæmum skilningi og virðingu innan hinsegin samfélagsins?
-Sýnileiki hinseginleikans í samfélaginu?

9. Fræðsla

-Hverja þarf að fræða, hvernig og um hvað?
-Fjölmiðlar og staðalmyndir

10. Fjölskyldur, fjölskyldutengsl og sambönd

-Hinsegin fjölskyldur
-Ættleiðingar og barneignir hinsegin fólks, réttindi og tækifæri?
-Stefnumótamenning

Leave a Reply