Skip to main content
Fréttir

Viðmælendur óskast

By 2. júní, 2014No Comments

Póstur sem við vorum beðin um að koma áfram til félagsmanna og áhugasamra:

Ég er Meistaranemi í Kynjafræði við Háskóla Íslands og er í leit að viðmælendum vegna lokaverkefnis míns. Verkefnið sem ég hyggst sinna snýr að upplifun og reynslu einstaklinga sem finna sér ekki stað í tvíhyggjuhugmyndum nútímans þegar snýr að kyngervi, kyn(ja)hkutverkum, kynvitund og kynhneigðar. Sérstök áhersla verður lögð á hver samfélagsmyndin væri ef hún tæki mið af reynslu þessara einstaklinga, og þá út frá hugmyndum viðmælenda.

            Þær niðurstöður sem koma út úr viðtölum verða settar fram í formi nóvellu (skáldsagna form undir 40.000 orðum), sem mun að öllum líkindum vera í ætt við femíniskan vísindaskáldskap.  Ég stefni á að taka viðtöl í lok maí, júní og byrjun júlí og er ekki endilega að takmarka mig við viðmælendur á höfuðborgarsvæðinu.

Ég er sem sagt að leita eftir viðmæmlendum sem eru viljugir til að deila reynslu sinni og upplifunum af nútíma samfélagi á sviðum kyngervis, kyn(ja)hlutverka, kynvitundar og kynhneigðar. Fullum trúnaði er að sjálfsögðu heitið.  

Þeir sem hafa áhuga geta haft samaband við mig í gegnum tölvupóst, hru1@hi.is“>hru1@hi.is. Ég mun senda frekari upplýsingar til viðkomandi um fyrirkomulag og auðvita er mögulegum þátttakendum frjálst að senda á mig spurningar og ég mun leitast eftir því að svara eftir bestu getu.

Bestu kveðjur og fyrirfram þakkir,

Hertha Richardt Úlfarsdóttir

Leave a Reply