FréttirHagsmunabaráttaTilkynningViðburður

Viljayfirlýsing um hinseginvænan vinnumarkað

By 7. ágúst, 2026ágúst 17th, 2026No Comments

Dómsmálaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin ’78, Samtök atvinnulífsins og heildarsamtök launafólks munu á viðburðinum Hýr vinnumarkaður undirrita viljayfirlýsingu um samstarf að því markmiði að stuðla að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði. Undirritunin fer fram í Iðnó föstudaginn 7. ágúst kl. 16 á viðburði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ í tilefni Hinsegin daga.

Með viljayfirlýsingunni taka aðilarnir höndum saman um að vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Í því skyni verður stofnaður aðgerðarhópur sem mun þróa fræðsluefni, verkfæri og aðgerðir fyrir vinnustaði auk þess að stuðla að aukinni þekkingu með rannsóknum og greiningum.

„Öflugur vinnumarkaður byggir á því að allir fái að njóta sín. Með þessu samstarfi erum við að stíga mikilvægt skref fyrir jafnrétti á vinnumarkaði, að fjölbreytileiki sé metinn að verðleikum og að starfsfólk upplifi öryggi og virðingu á sínum vinnustað,“ segir Jón Ólafur Halldórsson formaður Samtaka atvinnulífsins.

Aðgerðahópurinn mun meðal annars byggja á þeirri reynslu og þekkingu sem skapast hefur í gegnum Hinsegin vottun Samtakanna ’78 og leiðbeiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildingu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Markmið samstarfsins er að stuðla að öryggi og vellíðan á starfsfólks á vinnumarkaði sem skilar betri árangri vinnustaða og jákvæðum áhrifum fyrir samfélagið í heild.

Viðburðurinn Hýr vinnumarkaður er samstarfsverkefni ASÍ, BSRB, BHM og KÍ. Á fundinum munu Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur hjá Visku og Kári Garðarsson framkvæmdastjóri Samtökin ’78 flytja stutt erindi um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Þá stýrir Þorbjörg Þorvalds sófaspjalli með Hafþóri Óskarssyni grunnskólakennara, Irmu Alexöndru forritara, Ernu Dís Ingólfsdóttur mannauðsstjóra Íslandshótela og Söru Dögg Svanhildardóttur, sviðsstjóra fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ.

Öll velkomin