[English below] Samtökin ’78 fordæma þjóðarmorð Ísraels á Gasasvæðinu, þar sem tugir þúsunda hafa verið drepin undanfarið eitt og hálft ár og mannúðaraðstoð visvítandi haldið frá saklausum borgurum sem eiga sér enga undankomuleið. Samtökin hafa áður fordæmt þjóðarmorðið, en það var gert með yfirlýsingu félagsfundar í nóvember 2023.
Þátttaka Ísraels í Eurovision, þrátt fyrir að Ísrael standi frammi fyrir málsóknum bæði hjá Alþjóðlega sakamáladómstólnum og Alþjóðadómstólnum vegna meintra stríðsglæpa og þjóðarmorðs, dregur úr trúverðugleika keppninnar sem vettvangs fyrir samstöðu, fjölbreytileika og frið. Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) útilokaði Rússland frá keppninni árið 2022 eftir innrás þeirra í Úkraínu. Að halda nú fram hlutleysi gagnvart Ísrael undirstrikar tvöfalt siðgæði sambandsins og grefur undan trúverðugleika þess. Samtökin ‘78 kalla eftir því að Ísrael verði vikið úr Eurovision.
Almenningur um allan heim fylgist hjálparlaus með þeim voðaverkum sem ísraelsk stjórnvöld standa fyrir. Tækifæri til að hafa bein áhrif eru fá, en fólk reynir að beita stjórnvöld og stofnanir þrýstingi og krefjast þess að eitthvað verði gert áður en tugþúsundir til viðbótar láta lífið í glórulausu stríði. Við teljum nauðsynlegt að nýta öll tækifæri sem gefast til að krefjast ábyrgðar og réttlætis.
Grundvallarmannréttindi eru algild. Hinsegin fólk er að finna í öllum samfélögum heims, meðal annars í Palestínu. Samtökin ‘78 hafna á sterkasta mögulega hátt allri notkun á stöðu hinsegin fólks í Palestínu sem réttlætingu á fjöldamorði á saklausum borgurum. Friður, frelsi og öryggi er það sem skapar rými fyrir samtal og framgang þeirra réttinda sem við viljum að öll hinsegin systkini okkar fái að njóta.
–
The Icelandic queer organization Samtökin ’78 condemns Israel’s genocide in Palestine, where tens of thousands have been killed and humanitarian aid is being withheld from innocent civilians.
Israel’s continued participation in the Eurovision Song Contest, despite Israel facing lawsuits at both the International Criminal Court and the International Court of Justice for alleged war crimes and genocide, undermines the contest’s credibility as a platform for unity, diversity, and peace. The European Broadcasting Union (EBU) excluded Russia from the contest in 2022 following its invasion of Ukraine. To now claim neutrality regarding Israel highlights a double standard that severely undermines the EBU’s integrity. Samtökin ‘78 calls for Israel to be removed from Eurovision.
People across the world watch helplessly as the Israeli government carries out atrocities. There are few direct ways for the public to intervene, but many try to pressure institutions and governments to act before tens of thousands more lives are lost to a senseless war. We believe all available avenues must be used to demand accountability and justice.
Fundamental human rights are universal. Queer people are part of all societies around the world, including Palestine. Samtökin ‘78 rejects in the strongest possible terms any use of queer people’s status in Palestine as a justification for the massacre of innocent civilians. Peace, freedom and safety is what creates space for dialogue and the advancement of the rights that we want all our queer siblings to enjoy.