Skip to main content
Fréttir

Tónleikar með tilgang í Hörpu 6. mars

6. mars ætla Samtökin ’78 & Amnesty International á Íslandi, ásamt nemum í tómstunda- og félagsmálafræði að standa fyrir styrktartónleikum. 

Á tónleikunum koma fram Hinsegin kórinnSigga Beinteins & StjórninPáll ÓskarSykur og Retro Stefson

Kynnar verða Bjarni Snæbjörnsson & Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. 

Felix Bergsson flytur ávarp! 

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 í Hörpu og munu standa í um tvo tíma. 

Miðaverð verður 2000 kr og rennur allur ágóði óskiptur til hinsegin fólks í Úganda.

Miðar eru seldir á miði.is og harpa.is

Mannréttindi hinsegin fólks í Úganda eru fótumtroðin og fyrir liggur að frumvarp sem kveður á um lífstíðarfangelsi við samkynhneigð verði lögfest í landinu. Með því verður rótgróið hatur og mismunum gagnvart þeim sem eru eða teljast hinsegin, fest í sessi.
Samtökin ´78 og Íslandseild Amnesty International styðja 
úgönsk grasrótarsamtök hinsegin fólks í mannréttindabaráttu þeirra fyrir réttindum sínum. Eftir að Amnesty bauð lesbísku baráttukonunni Köshu til Íslands í fyrra ákváðu Samtökin ´78 að hefja samstarf við baráttusystkini í Úganda.

Tilgangur styrktartónleikana er að vekja athygli Íslendinga á stöðu hinsegin fólks í Úganda sem og að afla fjár fyrir grasrót hinsegin fólks í Úganda, svo þau geti hratt og örugglega unnið gegn frumvarpinu og opnað augu samlanda sinna fyrir hvaða afleiðingar það mun hafa í för með sér. 

Hér má sjá viðtal úr Kastljósi þar sem rætt var við Önnu Pálu Sverrisdóttur, formann Samtakanna ’78 og Hörð Helgason, formann Íslandsdeildar Amnesty International um málefni Úganda. Í viðtalinu er einnig myndskeið með kveðju frá vinum okkar í Úganda.

Sjáumst í Hörpu 6. mars!

Leave a Reply