Skip to main content
Yfirlýsing

Yfirlýsing í aðdraganda Alþingiskosninga 2024

By 27. nóvember, 2024No Comments

Á Íslandi hefur jafnrétti kynjanna og frelsi hinsegin fólks til að vera það sjálft verið í hávegum haft um árabil. Hér eru lagaleg réttindi og samfélagslegt samþykki hinsegin fólks með því besta sem fyrirfinnst í heiminum öllum, hér mælist jafnrétti kynjanna mest og hér er framsækið lagaumhverfi í málefnum kvenna.

Það eru því vonbrigði að sjá, síendurtekið, innflutt stef í opinberri umræðu sem minnir á málflutning öfga-íhaldsins í Bandaríkjunum, Ungverjalandi og víðar. Á undanförnum vikum hafa fulltrúar hvers flokksins á fætur öðrum kvartað hástöfum yfir meðvitund um mannréttinda- og jafnréttismál, því sem þau kalla vók eða pólitískan rétttrúnað, gegn sjálfsákvörðunarrétti trans fólks, gegn fullri og jafnri atvinnuþátttöku kvenna og gegn fullum yfirráðum kvenna yfir eigin líkama.

Í fyrsta skipti í sögunni hefur pólitískt framboð á Íslandi einnig talað fyrir því að taka til baka áunnin réttindi hinsegin fólks. Nánar tiltekið að banna heilbrigðisþjónustu fyrir trans börn og ungmenni. Þetta er gert þvert á vísindalega þekkingu og af fullkomnu ábyrgðarleysi gagnvart velferð þeirra barna sem þurfa á þjónustu heilbrigðiskerfisins og stuðningi samfélagsins að halda. Það er grafalvarlegt að logið sé að kjósendum um hinsegin málefni til þess að veiða atkvæði frá fólki sem ekki veit betur.

Við, undirrituð, hvetjum stjórnmálafólk til ábyrgrar umræðu á þeim fáu dögum sem eftir eru til kosninga og hvetjum kjósendur til þess að velja vel hvert atkvæði þeirra fer. Ísland er opið og réttlátt samfélag þar sem allt fólk á að geta notið virðingar. Til þess að svo verði áfram þurfum við að kjósa eftir þeim gildum sem við höfum í hávegum. Sá árangur sem náðst hefur í jafnréttis- og mannréttindamálum er tilkominn vegna öflugrar samstöðu og stöðugrar baráttu. Hún heldur áfram og öll geta tekið þátt nú á laugardag!

 

Samtökin ‘78

Kvenréttindafélag Íslands

Barnaheill

Trans Ísland

Stígamót

Geðhjálp

UNICEF